Friday, June 30, 2006

Hið læsandi löður


Í vikuritinu Fálkanum frá sjötta áratugnum er eftirfarandi auglýsingu að finna.

Henni þótti vænt um hann...en það var svitalykt af honum!....

Drengur: „Hversvegna kallar systir þig S.L. Jónsson, úr því að þú heitir Jón?”
Karlmaður með yfirvaraskegg: „Svit...”
Drengur: „Að minnsta kosti segist hún ekki geta hitt þig í kvöld.”

Ung kona með hönd undir kinn: „Stúlka getur ekki sagt karlmanni að sje svitalykt af honum”

Karlmaður með yfirvaraskegg sér auglýsingu í búðarglugga með Lifebuoy handsápunni, sem fyrirbyggir svitalykt: „Hún mundi þó aldrei meina SVITA LYKT! Auðvitað gat hún ekki minst á hana... ”

Karlmaður með yfirvaraskegg nýkominn úr baði: „Þetta hefði mjer átt að detta í hug fyr! Hvílíkt indælis löður. Nú líður mjer vel.”

Karlmaður með yfirvaraskegg og ung kona brosa blítt hvors til annars.

Karlmaður með yfirvaraskegg segir: „Einu sinni hjelt jeg að þú værir að útskúfa mjer. En nú...”

Unga konan: „Nú ertu orðinn vitrari!”

Neðanmáls í auglýsingunni segir: Útsvitun er eðlileg líkamsstarfsemi, sem eflir heilsu mannsins. En stundum stífla efnin í svitanum svitaholurnar...og „S.L.” – svitalyktin – verður áberandi. LIFEBUOY handsápan, með hinum undursamlegu heilsugjafarefnum sínum, er einfalt lækningar- og varnarlyf gegn svitalyktinni. Hið læsandi löður hennar hreinsar holurnar og heldur hörundinu frísku, svo að ekki verður að fundið. Tryggið yður að verða ekki öðrum til ama – notið LIFEBYOY handsápuna í baðinu og þvottaskálinni.